...myndi ég:
- hafa á stefnuskrá:
tengslauppeldi, frjálsan leik, borða sjálf og náttúra
- hafa vefmyndavél svo foreldrar
gætu fylgst með krílunum sínum úr vinnunni
- ENGAR skammir, flengingar, hótanir eða refsingar
- vera með þátttökuaðlögun
- hafa hvorki sjónvarp né tölvu í
þeirra (barnanna) svæði
- hafa ekkert "ó-ó" á
þeirra svæði
- gera raunhæfar væntingar til tilfinninga þeirra
- taka blíðlega á skapofsaköstum
- bera þau í burðarpoka
- lesa fyrir þau
- elda hollan og framandi mat
fyrir þau
- syngja með þeim
- leyfa þeim að leika með
hljóðfæri
- sýna þeim jóga og dans
- sýna þeim flugur og orma
- mála þau í framan
- gera tásu- og handamálverk
- leyfa þeim að leika með búninga og hatta
- hafa frekar fá leikföng og skipta þeim út, "rótera"
- halda áreiti í lágmarki (hávaða
og sjónrænu)
- vera með drullueldhús í garðinum
- biðja um myndir af fjölskyldum þeirra til að hafa á veggjum
- bjóða í fjölskyldumorgunmat
nokkrum sinnum á ári
- halda sumarhátíð fyrir
fjölskyldur þeirra
Það hlýtur að vera gaman að vera dagforeldri!
Hvað finnst þér að "drauma dagmamma" ætti að gera/hafa?